Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2012

Einu sinni en ekki of seint

Einu sinni var ég virkur bloggari en svo eyddi ég öllu mínu bloggi einn daginn og dauð sé eftir mörgu sem þar stóð, til að mynda plotti af sögunni um Jens og co. sem var kominn langt á veg og margir fastir lesendur sem biðu spenntir eftir framhaldi. En svona er víst lífið og það má segja að það sé ekki orðið of seint að endurvekja þessi föstu skrif en auðvitað taka þau sinn tíma. Allt tekur sinn tíma, skrifin, fésið, pósturinn, vefurinn... og svo mætti lengi telja.

En af mér er helst að frétta að ég er að huga að útgáfumálum þessar vikurnar og langt á veg kominn með undirbúningsvinnuna enda er fullt af stórgóðu fólki sem vinnur með mér. Hildur Enóla er ein af þeim og minn æðislegi skriftar og útgáfufélagi. Okkur langar að gera svo marga góða og skemmtilega hluti á bókamarkaðinum og tíminn verður að leiða í ljós hvernig okkur tekst til. 

Ég ætla ekki að þreyta ykkur með löngum skrifum, læt ykkur hafa þetta í skömmtum eftir svona langt hlé.

Kveðja Sirrý Sig.

 

 

 

 

 


Höfundur

Sirrý Sig
Sirrý Sig
Sirrý Sig rithöfundur

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband